Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Engilráð Ósk Einarsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: E-s konar, nærri því verkfræðingu
  • Hjúskaparstaða: Á einn sætan kærasta

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hve gömul/gamall ertu?

Heimsreisan er sett á hold, í bili!

08. október 2008 klukkan 12:58
Gengið er rosalegt og flug hafa hækkað um helming!
Staðan verður tekin aftur í desember og ákveðið hvað verður gert í þessari stöðu.
Hvort verður farið á tilsettum tíma eða henni verði frestað.

VILDI-listinn:

25. september 2008 klukkan 10:43
-Ég vildi að Össi færi nú að vakna
-Ég vildi að það væri 13. nóvember (TEINATAKA)
-Ég vildi að ég væri mjó
-Ég vildi að ég þyrfti ekki að læra í kvöld
-Ég vildi að ég ætti fullt fullt af peningum og þyrfti ekki að hafa áhyggjur
-Ég vildi að ég hefði tíma fyrir mömmu hitting
-Ég vildi að ég hefði tíma fyrir systra hitting
-Ég vildi að ég hefði tíma til að hanga með pabba
-Ég vildi að ég hefði tíma fyrir vina hitting
-Ég vildi að ég mætti borða súkkulaði á hverjum degi, oft á dag!
-Ég vildi að ég gæti sungið

Sorry, þurfti aðeins að losa.
Annars er þetta góður fimmtudagur, Össi byrjaður að sýna viðbrögð og helgin nálgast. Gæti þetta verið betra?

(hmmm svona eftir á að hyggja og ég les bloggið aftur yfir þá er þetta pínu vottur um geðklofa.... vildi svo mikið en samt góður fimmtudagur)

Búin að panta flug alla leið til Nýja-Sjálands

15. september 2008 klukkan 16:38
Jæja þá er maður búin að panta sér flug alla leið til Nýja-Sjálands, með þó stoppi á nokkrum stöðum :)
Þá er bara að koma sér til baka en svo helvíti dýrt er að fljúga yfir pacific-ocean eða um 100 þúsund kallinn... Maður geymir það í smá stund, allavegana þangað til næsta kortatímabili!!!

Næst á dagskrá er að fá leyfi til að komast til Indlands en til þess þurfum við vísa og það er svoldið mál. Við getum fengið vísa til Ástralíu og Bandaríkjana gegnum netið en við þurfum að senda passana okkar, passamyndir og fylla út rosa eyðiblöð og senda síðan alla leið til Noregs til að komast til Indlands!
Stefni á að ná því fyrir helgi.

Annars er ég búin að lofa að vinna yfirvinnu í vetur, ásamt því að vera í skólanum, ásamt því að eiga kærasta, ásamt því að vilja hitta vini mína. Gangi mér vel

Össi liggur enn á gjörgæslu. Stundum veit ég ekkert hvernig ég á að haga mér og enda alltaf á facebook með von um einhverjar fréttir, með von um einhvern bata með von um að Össi komi heill úr þessu öllu saman! Gleymi mér oft á dag í að hugsa um gamlar minningar um Össa eða seinast þegar hitti hann eða talaði við hann. Bið ég ykkur, kæru lesendur, að biðja og vona um að við fáum Össa til okkar fljótt. Við getum ekki verið án hans.

Heimsreisublogg!!!!!

07. september 2008 klukkan 21:12

Heimsreisubloggið verður staðsett www.engilradogjonas.bloggar.is.
Linkurinn er hérna hægra megin!

jeiiiiiiiiiiiiiiiiii

Glasgow var æði! Magavöðvarnir styrktust all hressilega og ég hef sjaldan helgiið svona mikið og lengi! Shit


Kom heim í hádeginu og fékk þá svona reality check allt í einu. Brúnað í skírnaveislu hjá prinsessu Gunna og Söndru en hún fékk nafnið Hrafnhildur Sif. Hún er svooo falleg. Síðan skruppum við Þórey úr veislunni og fórum í bænastund hjá honum Össa en hann er upp á sjúkrahúsi að berjast fyrir lífi sínu. Hann er samt svo duglegur og flottur, held að heimurinn geti aldrei verið án hans! Maður þarf bara að þola biðina.

Sumarið í mál og myndum

01. september 2008 klukkan 14:42
Í tilefni þess að það er 1. september í dag þá held ég að það sé tilvalið að koma með eina færslu :)

Sumarið byrjaði á alveg frábærlega en strax 1. maí skundaði ég út á flugvöll til að fara til Danmörku að hitta minn heitt-elskaða þar sem farið var m.a. í Tivolí og fermingu.



Næst á dagskrá var síðan flutningur að Eyjabakka 5 en þá varð ég sambýliskona :)



Síðan fór ég aftur til útlanda, alveg rosaleg ferð til Búlgaríu með grænmetissystrum mínum!!!!



Síðan voru loksins 4 ár liðin síðan seinasta Flæðareyarhátíð var liðin og það þýddi aðeins eitt, að það væri hátíð á þessu ári!!! Með bestu hátíðum sem ég hef farið á





Síðan skunduðum við kærustuparið í Helgarfell þar sem börn voru út um allt en unglingapartýið var þó auðvitað við hliðin á okkar tjaldi



Auðvitað var síðan skundað á Ögurball þar sem allt liðið mætti



Loksins loksins loksins kom að Mýrarboltanum þar sem við héldum uppteknu hætti og völdum okkur búninga eftir vaxtarlagi og hækkuðum okkur um eitt sæti.



Sandra Björg og Gunni eignuðust alveg æðislega prinsessu þann 10. ágúst



Síðan tók löng pása þar sem Mýrarboltinn tók svoldið á en arkað var á tónleika á Menninganótt með fallegu fólki




Síðan er það árshátíð hjá Deloitte sem verður í Glasgow frá fimmtudags-sunnudags, vei bara 3 dagar þangað til!
Síðan mun ég vera örugglega heima næstu vikurnar þar sem ég skráði mig í 67% nám með 100% vinnunni minni! Sjáum samt til hvernig það fer
Síðan en aðalmálið er auðvitað heimsreisan mín og Jónasar! Hún er skipulögð frá 27. desember til 28. mars og verður farið til Indlands-Thailands-Astralíu-Nýja Sjálands-Fiji-San Francisco-New York og síðan til Íslands. Stoppað í nokkra daga og síðan beint í skólann út í Þýskalandi.

Alveg fullt fullt að gerast :)

Fótbolti

23. júní 2008 klukkan 09:38
Heima hjá mér og sambúðarmanni mínum snýst allt um fótbolta þessa dagana. Ég var voða fegin þegar leikirnir fækkuðu úr 2 í 1 á dag því á tímabili var fótbolti frá 16-21 alla daga. Núna er fótbolti aðeins frá 19-21! En aðeins 4 leikir eftir og maður veit valla hvað maður á að gera þegar EM klárast, kannski að fara út að hreyfa sig í góða veðrinu!!!!
En eins og þeir vita sem hafa lesið þessa síðu undanfarin ár þá er Ítalía MITT lið og hefur verið síðan ég var 14 ára, eða á EM 1996. Á 10 ára afmælinu OKKAR urðum VIÐ loksins heimsmeistarar!´
Í gær dó draumurinn um að VIÐ yrðum evrópumeistarar líka.
Er enn sorgmædd, erfitt að skrifa þessi orð núna. Engin tár en rosaleg vonbrigði.
Í gær var þögn í svona 10 mínutúr eftir leikinn!
Sambýlismaðurinn minn horfði á sambýliskonuna. Hún var sorgmædd! Hrukkur á enninu, lokaður munnur og augun voru tóm!
Sambýliskonan gat ekki einu sinni horft á vítaspyrnukeppnina heldur faldi sig inn í eldhúsi!
Síðan öskraði sambýlismaðurinn NEI og ég vissi það og skreið út holu minni og horfði sorgmæddum augum, beint í augu mannsins! Sambýlismaðurinn var sorgmæddur fyrir hönd konunnar.
Síðan var þögn!

Nú ætla ég að reyna að vera ekki svona djúpt niðri. Kveð MÍNA menn með söknuðu af þessu móti og byrja strax að trúa á HM 2010 og ég trúi á Ítalíu!

Búin að reyna að ákveða með hverjum ég eigi að halda með fyrst að MÍNIR menn eru dottnir út. Finnst Rússarnir mjög skemmtilegir EN ég hef alltaf verið mikið fyrir góða markmenn svo ég gæti valið Spánverjar, jafnvel eftir gærdaginn. Ætla að hugsa þetta aðeins

Myndir frá Bulgó koma næst :)

Knus og kram fra Bulgo!!!!!!!

01. júní 2008 klukkan 12:07

Í sambúð, með manni!!!!

16. maí 2008 klukkan 11:59
Er að fara að búa með manni!
Við erum þá að fara að búa!
Í sambúð!

Hugtakið „sambúðarfólk“ hefur ekki verið skilgreint í íslenskri löggjöf og er í eðli sínu mjög víðtækt. Segja má að hugtakið nái yfir hverja þá fullorðnu einstaklinga sem velja sér að deila heimili hverjar svo sem ástæður þess eru.

Sambúðarfólk! hehehehe

Benni skrifaði á heimasíðuna sína að Jónas væri að hækka um tign (sambúð með stúlku).
Veit ekki hvort að maður sé endilega að hækka um tign en allavegana ekki að lækka um tign, sem er nú alltaf gott. 

Ég er samt ofur hamingjusöm sem er líka alltaf gott Brosandi

Flutningar munu standa yfir í hádeginu á morgun. Allir sem geta hjálpað endilega hjálpið!

P.S.
Innflutningspartý verður auglýst síðar!!!!

Hér er ein mynd af verðandi sambýlismanninum mínum, á ljúfri stundu á Ráðhústorginu í Köben

HM!

01. maí 2008 klukkan 08:01
Damörk eftir 8 tíma!
Jei HM eftir 26 tíma!
Kærasta hittingur eftir 30 tíma!!!

Gleði gleði gleði

Vorkenni mér mjöööööög mikið núna

26. apríl 2008 klukkan 10:03

Eeeeeeeen heppilegt!

Ég er:

-Komin með ógeðis hálsbólgu!

-Með ógeðis beinverki!

-Með ógeðslegar hellur í eyrunum!

-Með ógeðslegan hósta!

-Ógeðslega illt í lungunum!

-Með hor!

-Að fara í próf eftir helgi!

-Ekki með kærasta né mömmu á Íslandi til að vorkenna mér

 

Svoooo erfitt líf!!!!!!

Klukkan